Sósíalistar ákveða sig 18. febrúar

Gunnar Smári Egilsson leitar nú til flokksmanna sinna í Sósíalistaflokki Íslands með þá spurn á vörum hvort þeir eigi að bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum á vori komanda.

Samkvæmt tilkynningu á fésbókarsíðu flokksins á svarið að liggja fyrir innan rífrar viku, eða 18. febrúar, en flokkurinn bauð ekki fram lista fyrir síðustu alþingiskosningar sakir þess að þá þótti of stuttur tími liðinn frá stofnun hans.

Sósíalistaflokkurinn hélt málefnaþing sitt nýverið í Rúgbrauðsgerðinni þar sem nokkrir tugir flokksmanna komu saman og mótuðu stefnu flokksins.