Sósíalistar á Íslandi eru ábyrgir fyrir því að hafa klofið vinstri hreyfinguna á Íslandi. Þetta sagði Jón Baldvin Hannibalsson fyrrum oddviti Alþýðuflokkisns í útvarpsþættinum HARMAGEDDON hinn 15.apríl sl.
Jón Baldvin hefur yfirvegaða sýn og hann kann að sjá samhengi í pólitík. Þá er reynsla hans af vinstri hreyfingum á Íslandi óumdeild.
Hann var um langt skeið formaður Alþýðuflokksins. Jón Baldvin Hannibalsson spyr lykilspurningar um hvar fólkið í kringum Gunnar Smára Egilsson sé.
Jón Baldvin ræddi um Sósíalistaflokk Íslands sem áformað er að verði stofnaður 1.maí nk. Jón Baldvin segir að nauðsynlegt sé fyrir stjórnmálaflokk á Íslandi að hafa grasrót. Ekki dugi til að hafa sterkan leiðtoga.
Jafnvel í rústum Samfylkingarinnar sé grasrót - fólk með vilja og reynslu sem hægt sé að treysta.
Jón Baldvin segir í viðtalinu að Samfylkinguni varð að falli að hún brást.
Ekki bara af því að allir voru vondir við hana.
\"Hún brást\" sagði Jón Baldvin Hannibalsson.
Nánar www.eyjan.pressan.is