Kolbrún, búsett í Fossvogshverfi, greinir frá því í Facebook-hópnum 108 RVK - Hverfagrúbba söruþjófur komið við í garðinum hjá henni og stolið smákökudalli með nýbökuðum sörum í.
„Fyrir utan Réttarholtsveg 49 (innan girðingar) var poki með smákökudollu sem í voru nýbakaðar sörur. Þessi poki er horfin,“ skrifar Kolbrún.
„Ég vona að nágranni minn njóti þess að borða sörurnar... en ég var að pæla hvort ég gæti fengið áldolluna aftur? Hún var frá langömmu minni og mér þykir eins vænt um hana og hægt er að þykja vænt um dauðan hlut,“ bætir Kolbrún við. „En annars bara gleðileg jól.“
Nokkru seinn birtir Kolbrún hjartnæma mynd með skilaboðum til „söruþjófsins“ frá fimm ára dóttur sinni sem sjá má hér að neðan.