„Elsku Lucifer okkar fór í geldingu í gær en því miður þá lifði hann aðgerðina ekki af,“ segir Herdís Ósk Sveinsdóttir, um andlát kattar síns, í hópnum Kettir á Facebook. „Ég er ennþá í svo miklu sjokki og veit ekki hvernig ég á hreinlega að vera.“
Lucifer var sjö mánaða gamall fress og fór til dýralæknis í ófrjósemisaðgerð í gær. Á meðan á aðgerðinni stóð hætti hann að anda og hjartað gaf sig. „Dýralæknirinn vissi ekki alveg hvað gerðist en taldi líklegast að hann hafi mögulega verið með bráðaofnæmi fyrir lyfjum sem hann fékk fyrir aðgerðina.“
Dýralæknirinn forviða
Herdís segir fjölskylduna hafa verið með öllu óundirbúna fyrir slíkan harmleik enda hafði hún aldrei heyrt af því að gelding gæti verið lífshættuleg aðgerð.
„Dýralæknirinn var líka mjög hissa og sagði að þetta hafi aldrei áður komið fyrir hjá þeim,“ segir Herdís í samtali við Hringbraut en hún er enn að átta sig á aðstæðunum. Hún vakti athygli á atvikinu á facebook hóp kattavina til að spyrjast fyrir um hvort aðrir hefðu mögulega lent í slíku tilviki áður.
„Það er mikil sorg og söknuður hjá okkur fjölskyldunni. Ég er hreinlega bara ekki að ná þessu.“ Eigendurnir eru lömuð af sorg ásamt systur Lucifers og besta vin. „Litli bróðir minn á systur Lucifers og þar sem við búum hlið við hlið þá voru þau tvö mjög mikið saman og elskuðu að leika sér. Systir hans hefur verið ómöguleg þar sem hún hefur ekki leikfélaga sinn.“