Sony stækkar meiriháttar

Jap­anska fyr­ir­tækið Sony er orðið ráðandi hlut­hafi í út­gáfu­fyr­ir­tæk­inu EMI Music Pu­blis­hing og hef­ur þannig kom­ist yfir rétt­inn á fleiri en tveim­ur millj­ón­um laga lista­manna á borð við Qu­een og Alicia Keys. Sony átti fyr­ir rétt á 2,3 millj­ón­um laga, þar á meðal öll­um Bítla­lög­un­um. 

Viðskiptasíða mbl.is segir frá.

Kaup­in, sem nema 2,3 millj­örðum Banda­ríkja­dala, jafn­gildi 241 millj­arðs króna, gera Sony að stærsta tón­listar­út­gáfu­fyr­ir­tæki heims, að því er kem­ur fram í frétt breska rík­is­út­varps­ins BBC. 

Með kaup­um á hlut Muba­dala In­vest­ment Comp­any jókst hlut­ur Sony í EMI Music Pu­blis­hing úr 30 prósent í 90 prósent. Í til­kynn­ingu um kaup­in er haft eft­ir Kenichiro Yos­hida, for­stjóra Sony, að efn­isveit­ur á net­inu hafi hleypt lífi í tón­list­ariðnaðinn. Þetta er stærsta ákvörðun Yos­hida hingað til en hann sett­ist í for­stjóra­stól­inn fyrr á ár­inu, segir á Mbl.