Tónlistarmaðurinn Helgi Pétursson sagði í þættinum Fólk með Sirrý á þriðjudagskvöld að langur vegur væri frá því að gamla góða Ríó tríóið hans væri orðið of gamalt til að koma fram. Næsta gigg væri í Hörpu í haust, með syni sínum um borð.
Umræðuefni þáttarins var hlutskipti miðaldra fólks og var fjallað jafnt um kosti þess og galla að komast yfir miðjan aldur og njóta hans í leik og starfi. Helgi sagði það bábilju að það væri gamaldags að troða upp með margra áratugagömul tríó eða önnur þau bönd sem muna svart-hvítt sjónvarp. Hann benti þar á félaga Paul McCartney sem enn væri að á áttræðisaldri, enda ennþá í fullu fjöri - og hefði nú tekið stefnuna á Hróarskeldu til að gleðja norræna aðdáendur sína. Þar væri nú ekki leiðum að líkjast, sagði tónlistarmaðurinn kunni sem tilkynnti raunar í þættinum að von væri á Ríó tríó aftur á svið - og í þetta sinn í Eldborgarsal Hörpu að kveldi 23. október í haust, en árafjöld væri liðinn frá því þessi vinsæla sveit kom síðast saman opinberlega. Nú kæmi Snorri Helgason, sonur Helga inn í bandið fyrir Ólaf heitinn Þórðarson.
Hægt er að nálgast Fólk með Sirrý í heild sinni með því að smella hér.