„Ég reikna fastlega með því að þeir sem losuðu skrúfurnar á hjólinu hans Kolbeins Lárusar hafi ekki gert sér grein fyrir því hversu alvarlegar afleiðingar þessa gjörnings geta verið.“
Þetta segir Þórunn Lárusdóttir leikkona og söngkona í færslu á Facebook-síðu sinni. Hún deilir þar myndum af slæmu handleggsbroti sonar síns.
„Þetta eru afleiðingar þess sem mér skilst að sé frekar algengur grikkur hjá unglingum. Að losa skrúfur við dekkin á hjólum,“ segir Þórunn.
Hún segir að Kolbeinn Lárus sonur hennar hafi verið að hjóla með vinum sínum á fimmtudaginn þegar aftara dekkið á hjóli hans hafi allt í einu dottið af. „[M]eð þeim afleiðingum að hann dettur og handleggurinn tvíbrotnar. Hann þurfti að fara í aðgerð til að hægt væri að setja pinna (ft) í höndina svo að þetta grói nú allt saman á réttan hátt. Við biðum dálítið lengi eftir aðgerð og þurfti því eðli málsins samkvæmt að dæla í hann morfíni og þess háttar til að sársaukinn bæri hann ekki ofurliði.“
Þórunn vill af þessum sökum biðla til unglinga, foreldra, kennara og allra þeirra sem mögulega geta haft áhrif að ræða um og brýna fyrir krökkum að það að losa skrúfur á hjólum sé hættulegt.
„Kolla mínum líður mun betur núna, þó enn sé stuðst við einhver saklaus verkjalyf. Við erum komin heim, beinin komin aftur í réttar skorður og gróa vonandi fljótt,“ segir Þórunn að lokum.