Söngskólar landsins saman í hörpu

Nýr tónlistarþáttur, Eðaltónar, hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld, en þættirnir, sem eru í umjá Þorsteins Halldórsson sýna upptökur frá völdum tónleikum einsöngvara og kóra við ýmis tækifæri. Eðaltónar verða vikulega á dagskrá á þriðjudagskvöldum þegar dagskrá Hringbrautar verður lengd eftir páska en sérstök viðhafnarútgáfa af þeim verður sýnd á hátíðisdögum.


Þátturinn í kvöld er helgaður söngskólum landsins en þeir komu nýverið saman í Hörpu og sungu sig þar inn í hug og hjörtu áhorfenda. Kynnir á tónleikunum er söngvarinn dáði Bergþór Pálsson.


Eðaltónar eru frumsýndir klukkan 21.00 í kvöld og eru eins og allt annað dagskrárefni Hringbrautar í opinni dagskrá.