Athafna- og baráttumaðurinn Helgi Vilhjálmsson í Góu var gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í gærkvöld, en óhætt er að segja að það viðtal hafi spannað allan tilfinningaskalann.
Helgi kvaðst í viðtalinu vera í meira lagi stoltur af því að hafa fæðst og vera alinn upp í einu kunnasta braggahverfi Reykjavíkur, Camp Knox sem stóð lengi fram eftir síðustu öld milli Reynimels og Kaplaskjólsvegar, en þrengslin hafi ýtt honum þaðan 15 ára gömlum út og alla leið upp í 6 fermetra risíbúð í grenndinni - og þar með hafi vinnuævin hafist sem brátt spanni 60 ár - og nei, hann geti ekki hætt að vinna þótt kominn sé á 74. aldursár; honum líði ennþá best inni í verksmiðjusal með fólkinu sínu, kunni bara ekki við sig á bak við skrifborð eða tölvu.
Helgi lýsti æsku sinni á stórkostlegan hátt í viðtalinu, svo og uppbyggingu Góunnar sinnar sem enn er á sömu kennitölunni frá 1968 og ekki lækkaði hann flugið er hann minntist þess þegar hann innleiddi sölu á djúpsteiktum kjúklingi hér á landi, en útlendingarnir sem hann fékk leyfið frá höfðu nú ekki verið alveg vissir um að láta þennan algerlega menntunarsnauða eskimóa hafa réttinn si sona. En þeir sjái ekki eftir því núna.
Hann átti mjög erfitt með að lýsa erfiðustu lífsreynslu sinni í þættinum, þegar einkasonur hans var myrtur á heimili sínu í Hafnarfirði fyrir nálega fimm árum; þeir hefðu verið svo góðir vinir, unnið saman og varið frístundum sínum löngum saman - en svo hafi þetta bara allt verið tekið frá honum.
Óhætt er að segja að áhorfendur komist við þegar Helgi lýsir þessari erfiðu lífsreynslu sinni af tilfinningaríkri einlægni í samtali sínu við Sigmund Erni.
Mannamál er hægt að nálgast í heild sinni og klippum á hringbraut.is.