Heimur óhappatilviljana.
Sky fréttastofan greinir frá því að með 16 ára millibili hafi sömu flugvélinni verið nauðlent tvisvar á sömu hraðbraut vegna vélarbilunar. Lendingin tókst giftusamlega í fyrra skiptið, árið 2000 og slasaðist þá enginn. En í gær þurfti flugmaður á sömu vél aftur að lenda á sömu hraðbraut vegna vélarbilunar. Finn slösuðust og lést farþegi í bíl sem flugvélin skall á lést.
Samkvæmt Sky varð slysið við bæinn Fallbrook í Kaliforníu-fylki í gær. Flugvélin kom niður á kyrrstæðan bíl úti í kanti. Talið er bílnum hafi verið lagt til að bílstjóri gæti notað símann sinnn, enda ólöglegt að aka og nota síma án handfrjáls búnaðar. Allir fjórir sem voru í bílnum urðu fyrir einhverjum meiðslum þegar flugvélin kom inn í bílinn en kona, farþegi í aftursæti, dó við áreksturinn. Flugmaður og farþegi slösuðust aðeins minniháttar.
Hafnarboltamaður, Matt Noke, nauðlenti vélinni í febrúar árið 2000 eftir vélarbilun án þess að nokkur meiddist. Hann var ekki við stjórnvölinn í gær, enda búinn að selja vélina.