Engar breytingar voru gerðar á lista Sjálfstæðisflokksins varðandi kynjahlutföll í efstu sætum.
Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður sem áður var í öðru sæti listans verður í því fjórða. Hún færist upp um eitt sæti eftir að Ragnheiður Elínu hafnaði sætinu en hún leiddi listann áður. Unnur Brá verður gestur á Hringbraut á morgun.
Páll Magnússon, Ásmundur Friðriksson og Vilhjálmur Árnason verða efstu þrír á listanum, eins og niðurstaða prófkjörs Sjálftæðisflokksins varð fyrir um viku síðan.
Flokkurinn hefur fjóra þingmenn í kjördæminu nú.