Sömdu kröfuhafar við ríkið á mettíma?





Benedikt Jóhannesson ritstjóri Vísbendingar kveðst ekki skilja það í riti sínu Vísbendingu í gær hversu fljótt samningaviðræðum stjórnvalda við kröfuhafa hefði lokið í ljósi orða forsætisráðherra um að engar samningaviðræður hefðu átt sér stað.


Benedikt vitnar í ræðu forsætisráðherra seint í apríl sem hljóðar svo: "Virðulegur forseti. Íslensk stjórnvöld hafa ekki átt í neinum samningaviðræðum við kröfuhafa.“


Hér setur Benedikt á sig gleraugu rannsóknarlögreglumannsins og segir að í ljósi þess að kröfuhafar allra bankanna hefðu þegar lagt fram áætlun um að þeir vildu uppfylla stöðugleikaskilyrði hljóti þessi ræða forsætisráðherrans að þýða eitt af þrennu:



1. Viðræðurnar hafa hafist eftir 22. apríl og þeim lokið á 45 dögum.
2. Viðræðurnar hafa hafist fyrr, en ráðherra ekki verið kunnugt um þær.
3. Forsætisráðherra hefur talað gegn betri vitund á Alþingi.


"Þriðji kosturinn virðist útilokaður," skrifar benedikt og heldur áfram: "því að ráðherra sem segði Alþingi ósatt yrði auðvitað að segja af sér og annar möguleikinn hlyti að leiða til stjórnarslita. Því verður að álykta að viðræðum við slitabúin eða stærstu kröfuhafa hafi verið lokið á mettíma og það er mikið afrek að hafa klárað svo flókið verkefni á einum og hálfum mánuði.“


Nú heyri ég að það voru alls engar samningaviðræður í gangi við kröfuhafa, heldur bara samtöl og viðræður sem leiddu til þess að kröfuhafar vilja ólmir láta ríkið fá mikla fjármuni.


Ég segi eins og leynilögreglumaðurinn Colombo þegar skúrkarnir komu með fráleitar skýringar: That would explain it.“