Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason er nú staddur í Barcelona á Spáni, náðist af honum myndband að skokka við ströndina og var hann mjög sólbrúnn á að líta.
Eins og alkunna er greindi Fréttablaðið frá því í maí síðastliðnum að tvær konur hefðu leitað til lögreglu vegna meints ofbeldis af hálfu Sölva. Fréttirnar bárust eftir þrálátar flökkusögur um að Sölvi hefði beitt vændiskonu ofbeldi, en Sölvi hafnaði því ítrekað, meðal annars í hlaðvarpsþætti sínum. DV greindi svo frá því að hann væri kominn til Spánar, nánar tiltekið Barcelona í Katalóníu.
Ekki hefur náðst í Sölva þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og heyrist ekkert í honum á samfélagsmiðlum.
Íslensk kona var að taka myndband við ströndina, fyrir tilviljun náði hún Sölva að skokka.