Sjónvarpsþátturinn Fólk og frumkvæði í umsjá Sölva Tryggvasonar hefst á Hringbraut í kvöld en þar er fjallað um íslenska nýsköpun í útrás á fjölbreyttan og upplýsandi máta.
Sumardagskrá Hringbrautar er að taka á sig endanlega mynd í þessari viku og er nýi þátturins hans Sölva liður í henni. Þar ræðir hann við fjölda frumkvöðla í íslensku atvinnulífi sem hefur náð árangri í markaðssetningu allskyns varnings og þjónustu á erlendri grundu en þættirnir bera það með sér að mikil deigla er í nýsköpun hér á landi.
Í fyrsta þættinum sem sýndur verður í kvöld er rætt við Jón Sigurðsson forstjóra stoðtækjafyrirtækisins Össurar um velgengi fyrirtækisins á erlendum mörkuðum, en fyrirtækið hefur haslað sér völl úti í löndum á undanförnum árum svo eftir hefur verið tekið. Raunar ræðir Jón um það í þættinum að Össur hefði aldrei náð að stækka eitthvað að ráði í því íslenska efnahagsumhverfi sem ríkt hefur hér á landi um árabil með gjaldeyrishöftum; peningastefnan sem rekin sé á Íslandi henti engan veginn fyrirtækjum á boð við það sem hann stjórnar. Því þurfi að leita út eigi fyrirtæki að vaxa og dafna.
Í þættinum er starfsemi Össurar skoðuð og rætt meðal annars við hönnuð á vegum þess sem þróar bæði gervifætur og prófar þá, en hann þarf sjálfur að notast við gervifót dags daglega.
Fólk og frumkvæði - íslensk nýsköpun í útrás, hefst klukkan 21:30 í kvöld.
Klippur úr þætti köldsins er að finna hér.