Vinstri grænir og Samfylkingin vilja færa kosningaaldurinn niður í 16 ár. Þau Katrín Jakobsdóttir formaður VG, Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar ásamt þingmönnunum, Kristjáni L. Möller og Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur lögðu fram frumvarp þess efnis í gær, en markmið þess er að að styðja við lýðræðislega þátttöku ungs fólks bæði í kosningum sem og stjórnmálastarfi.
Í greinagerð með frumvarpinu segir meðal annars.:„Með því að veita ungu fólki á aldrinum 16–18 ára kosningarétt fær það tækifæri til að móta líf sitt og framtíð á sama hátt og aðrir borgarar og verður að fullu gjaldgengt í umræðu um stjórnmál og samfélagsmálefni.“
Samfylkingin samþykkti ályktun um 16 ára kosningaaldur á landsfundi sínum sem fram fór um síðustu helgi. Þingmenn Vinstri grænna hafa tvisvar áður flutt þingmál efnislega samhljóðanda þessu frumvarpi. Austurríki hefur eitt Evrópuríkja stígið það skref til fulls að fær kosningaaldur niður í 16 ár en slíkt tíðkast einnig í nokkrum ríkjum Suður- og Mið-Ameríku.