„Við risum upp í vetur. Við sögðum: Við erum hér og þið skuluð venjast því, við erum hér, við höfum alltaf verið hérna, nú er tími þess að við verðum öll sýnileg runnin upp.“
Þetta sagði Sólveig Anna Jónasdóttir formaður Eflingar í ræðu á Ingólfstorgi sem vakti mikla lukku á meðal fundargesta. Fjölmennt var í miðborginni. Á mbl.is er vitnað í Sólveigu sem sagði:
„Forherðingin, firringin sem birtist okkur í vetur er vissulega ógeðsleg en við skulum samt fagna henni. Þau sem hafa látið sem það væri náttúrulögmál að þau hafi endalaus völd til að ákveða lífsskilyrði okkar, afkomu og aðstæður voru opinberuð sem vanstilltir loddarar,“
Þá sagði Sólveig einnig í ræðunni:
„Við risum upp í vetur. Við sögðum: Við erum hér og þið skuluð venjast því, við erum hér, við höfum alltaf verið hérna, nú er tími þess að við verðum öll sýnileg runnin upp. Sjáið sýnilegu vinnuhendurnar okkar og sjáið hvað gerist þegar við stingum þeim í vasann. Þau brjáluðust, talsmenn óbreytts ástands, talsmenn algerra yfirráða hinna ríku,“ sagði Sólveig og bætti við:
„Við ætlum ekki lengur að fórna tíma okkar og lífi, okkur sjálfum fyrir þjóðfélag þar sem fámenn yfirstétt greiðir sjálfum sér milljarða í fjármagnstekjur á meðan að fjöldi fólks fær aldrei um frjálst höfuð strokið.“