Sólveig rýfur þögnina: Segir ummæli Drífu „sorgleg“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur rofið þögnina um fjöldauppsagnir félagsins, en það gerir hún í tilkynningu til fjölmiðla. í gær var greint frá því að Sólveig og svokallaður baráttulisti hennar, sem hefur meirihluta í stjórn, hefði samþykkt að segja öllu starfsfólki Eflingar upp.

Í yfirlýsingu sinni segist Sólveig mótmæla orðum Drífu Snædal, forseta ASÍ, um málið, en hún sagði við Fréttablaðið í dag að málið kæmi sér í opna skjöldu og að hún fordæmdi ákvörðun stjórnar

„Formaður Eflingar - stéttarfélags mótmælir órökstuddum yfirlýsingum forseta Alþýðusambands Íslands um lýðræðislegar ákvarðanir stjórnar Eflingar varðandi innri skipulagsmál á skrifstofum félagsins.“

Sólveig heldur því fram að uppsagnirnar byggi á „á skýrum og málefnalegum grunni“ og að þær séu hugsaðar til að innleiða „samræmi, jafnrétti og gagnsæi í launakjörum starfsfólks, innleiða eðlilegt bil milli hæstu og lægstu launa á skrifstofunum, og gera aðrar löngu tímabærar og nauðsynlegar breytingar á skipulagi.“

Þá er því haldið fram að Drífa hafi ekki haft fyrir því að leita upplýsinga eða skýringa frá formanni eða stjórn Eflingar. „En hikar þó ekki við að fordæma opinberlega þeirra störf í þágu félagsfólks í Eflingu. Það eru sorgleg nýmæli að forseti Alþýðusambandins ráðist á verka- og láglaunafólk í stjórn eins af aðildarfélögum ASÍ með þessum hætti.“ segir í yfirlýsingunni.

Þá segir að hinn svokallaði baráttulisti hefði lýst því yfir í kosningabaráttu sinni að hann myndi gera „nauðsynlegar breytingar á rekstri skrifstofu Eflingar.“ Þá segir að „við það loforð verði staðið.“

Sólveig heldur því fram að í því ferli sem nú standi yfir sé lögum og vinnubrögðum sem við eiga fylgt. Þá er tekið fram að „óhjákvæmilegt“ sé að segja upp öllum ráðningarsamningum, en þó er tekið fram að allt starfsfólk verði hvatt til að sækja um auglýst störf að nýju.

Í lok yfirlýsingarinnar segir að Sólveig harmi að einstaklingar innan Eflingar hafi lekið upplýsingum í fjölmiðla áður en samráðsferli lauk.

„Yfir stendur lögbundið samráð við fulltrúa starfsfólks sem lögum samkvæmt ber að fara fram í trúnaði. Formaður Eflingar harmar að aðilar hafi rofið trúnað, lekið gögnum í fjölmiðla og tjáð sig þar með óvarlegum hætti áður en því samráðsferli lauk.“