„Hvaða andskotans rugl er þetta? Erum við komin á þann stað að fátæk kona þarf að birta upplýsingar af bankareikningi sínum til að reyna að sleppa undan fólkinu sem hún afhjúpaði sem brjálæðinga? Mér er pínku óglatt.“
Þetta skrifar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, á Facebook síðu sína í dag. Þar vísar hún til ákvörðunar Báru Halldórsdóttur um að birta bankayfirlit sitt fyrir tímabilið 15. nóvember til 15. desember, eftir að lögmaður fjögurra þingmanna Miðflokksins lagði fram kröfu til Persónuverndar um upplýsingar frá fjármálafyrirtækjum varðandi millifærslur á fjármunum inn á persónulegan reikning Báru á því tímabili.
Sólveig segir þessa aðför að Báru sérstaklega ógeðfellda og nefnir dæmi um hvernig skúffupeningar Gunnars Braga Sveinssonar sem fyrrverandi ráðherra, eins af þingmönnunum fjórum, hafi farið í að styrkja ókláraða heimildamynd Árna Johnsen, sem Fréttablaðið fjallar um í dag. „Í Fréttablaðinu í dag er frétt um einhverja heimildarmynd sem Árni Johnsen ætlaði að búa til og segist vera „svona hálfnaður með“ (byrjaði á henni 2014 en hún er reyndar um mjög stórt og langt sund á Grænlandi, kannski svo stórt að það er ekki einu sinni hægt að klára að gera með mynd um það, hvað veit maður?).“
„Til að hálfna (nýtt orð: Ég stóð mig vel, ég náði að hálfna það sem ég átti að gera) þessa mynd fékk Árni hundruðir þúsunda í styrki frá þremur ráðherrum, m.a. frá Gunnari Braga sem sótti peninginn oní ráðherraskúffuna sína og gaf Árna Johnsen, hinum landsþekkta dugnaðarforki,“ bætir Sólveig við og ljóst er að henni er mikið niðri fyrir.
Sólveig segir að lokum: „Til hvers annars eru enda skattpeningarnir okkar Báru og allra hinna láglauna/öryrkja le[i]ðinda-kvennsanna en til að gefa Gunnari Braga pening til að gefa Árna Johnsen mjög mikinn pening? C\est la vie