Sólveig lenti í uppákomu á djamminu: „Þau sitja áfram ofan á mér og tvö þeirra fara í sleik“

Rithöfundurinn Sólveig Johnsen deilir ömurlegri sögu sem hún varð fyrir á djamminu á Twitter.

Hún segist hafa setið á Ölstofunni að njóta lífsins með vinum sínum, edrú þar sem hún drekkur ekki.

Þá hafi tvær konur og maður labbað inn og sest öll þrjú við hliðin á henni á bekk sem hún sat á, þó það hafi verið nóg pláss annars staðar.

Bekkurinn hafi ekki verið nægilega stór fyrir þau öll þannig að önnur konan hafi í raun og veru setið í fanginu á sér og ofan á veskinu hennar.

„Ég gef þessu smá grace period, hélt þau myndu kannski færa sig og þetta væri bara smá djók, en þau sitja áfram ofan á mér og tvö þeirra fara í sleik. (Stóllinn á móti ennþá tómur). Þannig að ég ákvað að segja e-ð: Ég: afsakið, gætuð þið nokkuð aðeins fært ykkur?“ skrifar Sólveig á Twitter.

Hún segir fólkið hafi litið stórundrandi á hana og hafi ekki fært sig. Í stað þess hafi maðurinn byrjað að afsaka sig og byrjar að strjúka henni um allan handlegginn.

Sólveig segist hafa beðið manninn um að hætta en það hafi hann ekki gert heldur haldið áfram.

Eftir smá stund hafi maðurinn áttað sig aðeins og byrjað að draga sig til baka og biðjast afsökunar en þá hafi konunar tvær brugðist ókvæða við.

Þær hafi verið mjög dónalegar.

Söguna í heild sinni má lesa hér að neðan.