Rithöfundurinn Sólveig Johnsen fékk taugatrekkjandi tölvupóst í nótt frá gerenda sínum þar sem hún var grátbeðin um að nafngreina hann ekki, barnanna hans vegna. Sólveig fjallar um þetta mál á Twitter síðu sinni.
Hún spurði í gær:
„Er það rétt skilið hjá mér að gerandi minn geti kært mig fyrir ærumeiðingar ef ég segi frá því sem hann gerði mér (og nafngreini) en andlega ofbeldið sem hann beitti mig í mörg ár og olli mér langvarandi skaða er bara ekki refsivert samkvæmt íslenskum hegningarlögum ???????“
Viðkomandi gerandi getur ekki séð hvað hún birtir á Twitter sem þýðir að einhver hefur sent þau til hans. Í nótt fékk hún svo tölvupóst:
„Ooog í nótt fékk ég meil frá ofbeldismanninum þar sem hann grátbað mig að nafngreina sig ekki, barnanna sinna vegna,“ segir hún. „Kannski gáfulegra að hugsa út í það ÁÐUR en þú beitir ofbeldi AUMINGI og fokking ekki senda mér meil.“
Hún segir það alfarið sína ákvörðun að opinbera nafnið:
„Ef ég ákveð að nafngreina er það mín ákvörðun og ég ber ekki ábyrgð á því hvernig ofbeldismenn líta út gagnvart sínum börnum og fjölskyldum. Einnig til manneskjunnar sem sýndi honum tvítin mín (hann er blokkaður), til hamingju með gerendameðvirknina.“