Sólveig Anna Jónsdóttir, ófaglærður starfsmaður á leikskóla í Reykjavík, er tilbúinn í slaginn eftir að hafa safnað þeim 120 undirskriftum sem skila þarf inn fyrir klukkan 16 í dag vegna mótframboðs til stjórnar Eflingar.
Sólveig Anna hefur verið óspör á gagnrýni sína á forystu verkalýðshreyfingarinnar í landinu og vænt hana um sinnuleysi þegar kemur að kjarabaráttu fyrir verst launaða fólkið í landinu. Í raun og sann hafi forystan staðið fyrir fátæktarvæðingu hér á landi, enda lægstu laun svo skammarlega lág að vonlaust sé fyrir fólk að lifa af þeim.
Á sérstökum baráttu- og samstöðufundi í Rúgbrauðsgerðinni í gær, þar sem fjallað var um stöðuna innan stéttarfélaga og meðal annars tilkynnt um hið nýja framboð hjá Eflingu, lýsti Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR yfir stuðningi við framboð Sólveigar Önnu - og boðaði jafnframt áframhald yrði á „byltingunni“ hjá stéttarfélögunum. Hann sagði fulla þörf vera á endurnýjun forystunnar og að forysta verkalýðshreyfingarinnar þyrfti að tala máli fólksins á gólfinu.