Sólveig Anna sár: „Mér var ekki óskað til hamingju“

Sólveig Anna Jónsdóttir, nýkjörin formaður Eflingar, tók við formennsku félagsins á aðalfundi félagsins í gærkvöldi og er hún vonsvikin yfir viðbrögðunum sem hún fékk.

Frá þessu greinir Sólveig Anna á Facebook-síðu sinni.

Að sögn Sólveigar Önnu var henni ekki óskað til hamingju af fráfarandi formanni og á dagskrá fundarins var ekki gert ráð fyrir ávarpi nýs formanns, líkt og hafði verið gert árið 2018 þegar hún tók við formennsku.

„Á fundinum í gær varð mér nokkrum sinnum hugsað til aðalfundarins 2018 þar sem ég tók við formennsku í fyrra skipti. Á þeim fundi var mér óskað til hamingju af fráfarandi formanni, ég flutti ávarp og fékk afhentan blómvönd. Allt eitthvað sem öll ættu að sjá og skilja að er sjálfsagður og eðlilegur hluti af stjórnarskiptum í verkalýðsfélögum og öðrum félagasamtökum, sama hvort að þau sem fara frá völdum er sátt við nýja forystu eða ekki. Almennt siðgæði og velsæmi í samfélagi sem kennir sig við leikreglur lýðræðisins krefst þess einfaldlega að fólk kunni að tapa,“ segir Sólveig Anna meðal annars í færslu sinni.

Sólveig Anna segir fólk þess í stað hafa lagt mikið á sig til að láta hana líta illa út og láta hljóma sem hún ætli að gerast einráð í félaginu, sem er fjarri lagi að hennar sögn.

Facebook-færslu Sólveigar Önnu má lesa í heild sinni hér að neðan.