Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður Eflingar, mátar sig við starf áhrifavalds í Facebook-færslu í gær.
Hún birtir mynd af morgunverði sínum með uppstilltri G-mjólk og skrifar hún að kannski geti hún orðið G-mjólkur áhrifavaldur. „Það sést á blóðþorstanum hverjar drekka G-mjólk.“
Það hefur vart farið fram hjá neinum þegar Sólveig Anna sagði af sér formennsku Eflingar fyrir stuttu og hófust í kjölfarið allskyns ásakanir á milli hennar og annarra starfsmanna og stjórnenda Eflingar.
Má ætla að Sólveig Anna sé að vísa til alls sem á undan hefur gengið með setningu sinni, „Það sést á blóðþorstanum hverjar drekka G-mjólk.“
Hver veit nema Sólveig Anna verði næsti áhrifavaldur landsins.