„Á samningafundi í morgun komu þessi skilaboð: Algjör samstaða í baklandinu; félagsmenn Eflingar sem starfa hjá sveitarfélögunum fá innágreiðsluna alls ekki; enginn 105.000 kall handa láglaunafólkinu, endalaus ofurlaun handa hálaunafólkinu.“
Þetta segir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir:
Efling og Starfsgreinasamband Íslands áttu fund með samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga í morgun þar sem 105.000 kr. innágreiðsla til félagsmanna var meðal þess sem tekið var til umræðu. Efling og SGS lögðu á það þunga áherslu að upphæðin sem ríki, Reykjavíkurborg og nokkrar aðrar stofnanir greiddu sínu fólki 1. ágúst sl. yrði greidd til starfsmanna SÍS núna 1. september.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar segir þessi viðbrögð SÍS forkastanleg, sérstaklega í ljósi umræðu um ofurlaun bæjarstjóra og annara sveitarstjórnenda sem réttlæta laun sín með vísun í mikla ábyrgð og þess tíma sem fer í að sinna starfsskyldum.
„Í ljósi hugtaka eins og ábyrgðar og vinnusemi er áhugavert að velta fyrir sér annars vegar því ábyrgðarleysi sem fólkið innan vébanda Sambands íslenskra sveitarfélaga leyfði sér nú í sumar þegar það tók ákvörðun um að greiða ekki 105.000 kr. innágreiðslu til félagsmanna Eflingar og annarra félaga innan Starfsgreinasambandsins vegna komandi kjarasamninga, ætlaða til þess að létta láglaunafólki biðina eftir þeim launahækkunum sem þegar hefur samist um á almenna markaðnum, og hins vegar ábyrgðina sem láglaunastéttir sveitarfélaganna axla á hverjum einasta degi í störfum sínum,“ segir Sólveig Anna og bætir við:
„Ábyrgð sem á endanum er svo lítils metin að fólkið með völdin gefur ekkert fyrir hana, þrátt fyrir að þau viti auðvitað að án allra þessara vinnandi handa væru engin sveitarfélög til að stjórna, engin ofurlaun til að skammta sjálfum sér.“