Sólveig Anna Jónsdóttir, sem leiddi B-lista í kjöri til nýrrar stjórnar Eflingar, vann yfirburðasigur þegar tilkynnt var um lyktir atkvæðagreiðslunnar í gærkvöld en framboð hennar hlaut yfir áttatíu prósent atkvæða og var lista stjórnarinnar, A-listanum, því algerlega hafnað.
„Þetta var mjög óvænt,\" segir Sólveig Anna Jónsdóttir í samtali við ruv.is í morgun og kveðst að vonum vera hæstánægð með sigurinn, en segir hann hafa verið mun stærri en hún átti von á. Sólveig Anna segir skýringuna liggja í því að verkafólki sé misboðið.
„Við vorum orðin jákvæð og bjartsýn [á mánudag] vegna þess að þegar við fórum að fara yfir stöðuna þá áttuðum við okkur á því að á öllum þessum vinnustaðafundum sem við höfðum farið á höfðum við bókstaflega ekki hitt eina einustu neikvæðu manneskju,\" sagði Sólveig Anna í samtali við fréttastofu RÚV skömmu eftir að úrslitin lágu fyrir á fyrsta tímanum í nótt.