Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist ánægð með ákvörðun félags- og vinnumarkaðsráðherra um að ríkissáttasemjari, Aðalsteinn Leifsson, stígi til hliðar. Hún segir að nú sé kominn tími til setjast við samningaborðið og gera Eflingarsamning við Eflingarfólk.
„Efling hefur allan þennan tíma sýnt mjög ríkulegan og raunverulegan samningsvilja. Það vorum við sem komum með hvert tilboð á fætur öðru. Nú er auðvitað öllum ljóst að sá kjarasamningur sem var undirritaður við starfsmannasambandið fyrir jól er ómögulegur.“
Sólveig segir að Efling hafi rökstutt með mjög málefnalegum og ítarlegum hætti að sá samningur hafi verið slæmur fyrir Eflingarfólk. Hún segir að síðasta tilboð Eflingar standi enn og að nú sé ekkert eftir fyrir Samtök atvinnulífs annað en að mæta við samningaborðið og ljúka kjaradeilunni.
„Ég veit ekkert hvað gerist á næstu dögum, en ég tel að það hljóti einfaldlega að gerast að menn sem eru búnir að fara fram með þeim svívirðilega hætti sem þeir hafa gert en hafa samt endað á þessum stað með ekkert í höndunum. Hvað ætla þeir að gera? Það er ekkert eftir nema að semja við okkur,“ segir Sólveig
Hægt að lesa meira hér.