Sólveig Anna: „Hvað er hægt að segja við svona einbeittri veruleikafirringu?“

„Ég og félagar mínir í Eflingu strunsuðum ekki út. Við gengum út í fylktu liði, í samstöðu hvort með öðru. Við erum þroskað, fullorðið fólk. Við þekkjum eigin virði og við berum höfuðið hátt,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

Hún birti færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hún svarar viðtali við Ólöfu Helgu Adolfsdóttur sem birtist á vef Vísis í morgun. Þar sagði Ólöf Helga meðal annars vonast til að verkalýðsleiðtogarnir þrír sem strunsuðu út af þingi sambandsins í gær myndu sjá að hreyfingin þyrfti á öllum að halda. Þá kæmu ásakanir þremenninganna um persónuárásir henni spánskt fyrir sjónir.

Sólveig Anna spyr í hvað er hægt að segja við svona einbeittri veruleikafirringu í færslu sinni.

„Við sáum að efnahagsleg réttlætisbarátta okkar fyrir verka og láglaunafólk og það að við höfum sigrað í lýðræðislegum kosningum um hver eigi að leiða Eflingu, skipti engu máli á þingi ASÍ, að við skiptum engu máli. Því fórum við,“ segir Sólveig Anna um atburði gærdagsins á þingi ASÍ.

Færslu Sólveigar Önnu má lesa í heild sinni hér að neðan.