Sól­veig anna gefur lítið fyrir út­skýringar vg á stjórnar­sam­starfinu: „hvað heldur stein­grímur j. eigin­lega að hann sé?

„Hvað heldur Steingrímur J. eiginlega að hann sé?“ spyr Sólveig Anna Jónsdóttir í færslu sinni á Facebook þar sem hún bregst við nýútgefinni bók um sögu Vinstri grænna: Hreyfing rauð og græn sem sagnfræðingurinn Pétur Hrafn Árnason skrifaðir. Í henni má finna ýmsar útskýringar þingmanna flokksins á stjórnarsamstarfinu með Sjálfstæðisflokknum sem margir hafa gagnrýnt.

„Þetta er nú meiri hörmungin. Það að koma Bjarna Ben í fjármálaráðuneytið er djörf en spennandi ákvörðun, en ekki svik við vinnandi fólk á Íslandi,“ segir Sólveig. „Það að taka ákvörðun um að ganga á bak stefnu flokksins þíns er að finnast bakþankar leiðinlegir. Það að taka ákvörðun um að húkka upp með forhertu auðvaldi og fólki sem er ekkert annað en útsendarar íslensku auðstéttarinnar er festast ekki í sögulegri hefndarhyggju.“

„Hvað heldur Steingrímur J. eiginlega að hann sé?“ heldur hún áfram. „Heldur hann að það sé í hans valdi að láta sem að Sjálfstæðisflokkurinn og Valhöll séu ekki vandamál í samfélaginu, stórkostlegt vandamál sem hefur fætt af sér þá sjúku nýfrjálshyggju sem við erum öll látin lifa við; sjúka græði auðstéttarinnar, skattaundanskot til skattaskjóla, endalausan niðurskurð, samræmda láglaunastefnu, sadisma þegar kemur að meðferð á flóttafólki, algjöru skeytingarleysi gagnvart náttúrunni og svo auðvitað óheftri og klikkaðri hernaðarhyggju sem að friðarflokkurinn VG tekur nú þátt í eins og ekkert sé?“

Í bókinni er haft eftir Steingrími að ekki ætti að einblína á hlut Sjálfstæðisflokksins í hruninu og festast þannig í sögulegri hefndarhyggju, heldur væri það stefna sem ákveðnir einstaklingar hafi reynt að framfylgja sem um væri að kenna.

„Ég veit ekkert hvað söguleg hefndarhyggja þýðir. Kannski er það að vera haldin sögulegri hefndarhyggju að muna það sem gerst hefur síðustu áratugi og taka eftir því hvaða afleiðingar það hefur. Þá vil ég bara endilega vera með svoleiðis,“ segir Sólveig.

„En auðvitað er þetta bara bull, eitthvað tilbúið rugl í fólki sem er hefur ekki raunveruleg prinsipp, raunverulega stefnu, raunveruleg gildi, rugl í fólki sem hefur ákveðið að völdin sjálf séu það mikilvægasta og pólitík sé hvort sem er bara leikur sem snúist um það hverjir geti sagt mest ósatt.“