Sólveig anna: „eruði klikkuð?“

„Ég vona að allt sem uppbyggist verði merkt mjög rækilega með nöfnum hinna auðugu og göfugu svo að við vesalingarnir vitum þegar við glápum í aðdáun á flotta glugga svo dæmi sé nefnt hvaða auðjöfur skóp fegurðina og færði okkur.“

Þetta segir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar í pistli á Facebook. Hún deilir frétt Vísis um að nokkrir auðjöfrar ætli að veita nokkur hundruð milljónum efra til viðgerða á Notre Dame dómkirkjunni í París en um er að ræða menn sem eru hluti af auðugust fjölskyldum Frakklands. Um þessar fregnir segir Sólveig:

„Svo að við gerum ekki þau leiðu mistök að segja í kirkjunni: \"Guð minn góður, hvað þetta er fallegt\" heldur föttum að segja: \"Jeff Bezoz, hvað þetta er fallegt\" eða \"Bernard Arnault, þetta er stórkostlegt.\"“

Þá segir Sólveig að endingu:

„Gott að vita til þess á svona sammannlegum-örlagastundum að 26 menn eiga næstum allan auð veraldar. Ef svo væri ekki er alls óvíst um hvort yfirleitt væri hægt að endurbyggja hið sögulega stórvirki. Hvernig ætti eiginlega að fjármagna það? Með peningum úr ríkissjóði, mögulega sköttum hinna vellauðugu? Eruði klikkuð?“