Söluferli landsbankans að hefjast

Bankasýsla ríkisins undirbýr nú sölu ríkisins á allt að 30% eignarhlut í Landsbankanum, en ríkið eignaðist bríflega 80% hlut í bankanum þegar hann var reistur við eftir hrun. Stefnt er á að því að sölu á þeim hlut ríkisins, sem nú er til sölu, verði lokið á seinni hluta næsta árs.
 

Bankasýslan áætlar að skila formlegri tillögu til ráðherra um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum fyrir 31. janúar næstkomandi, að því er fram kemur í bréfi Bankasýslunnar til fjármála- og efnahagsráðherra. Þar segir að stofnunin hafi kynnt sér áform um sölu ríkisins samkvæmt fjárlagfrumvarpi fyrir árið 2016.

Í bréfinu kemur fram að til að tryggja gagnsæi í ferlinu og skapa faglegan umræðugrundvöll um söluna muni Bankasýslan birta opinberlega skýrslu um bráðabirgðaniðurstöður sínar síðar á þessu ári. Að því gefnu að stöðugleiki ríki á fjármálamörkuðum og rekstrarafkoma Landsbankans verði í takt við áætlanir ætti fyrstu sölu á eignarhlut ríkisins í bankanum að vera lokið á seinni hluta árs, í samræmi við þau áform sem koma fram í fjárlagafrumvarpinu, segir í bréfinu.

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra hefur sagt að samstaða sé í ríkisstjórn um að selja þennan eignarhlut ríkisins í Landsbankanum, en Framsóknarflokkurinn samþykkti sem kunnugt er á flokksþingi í vor að bankinn eigi að vera samfélagsbanki. Hefur helsti talsmaður flokksins í efnahagsmálum, Frosti Sigurjónsson talað mjög í þá veru.
 

Í nýframlögðu fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir sölu á 30% eignarhlut ríkisins í Landsbankanum sem varið verði til lækkunar á skuldabréfum vegna endurfjármögnunar bankakerfisins. Í umræðu um fjárlögin á Alþingi sagði Bjarni að fgrumvarpið í heild sinni nyti stuðnings beggja flokka.