Söluaukning primera air 125%

Árið 2017 reyndist metár hjá Primera Air en met voru slegin á fjölmörgum sviðum í rekstri félagsins, að því er fram kemur í tilkynningu fra félaginu í dag, en samkvæmt henni er leitun að evrópskum flugfélögum sem bættu jafn mikið við sig í fyrra. 

Tekjuaukning milli áranna 2016 og 2017 reyndist tæp 14% og söluaukning á vefsíðu fyrirtækisins jókst um 125,8% milli ára.  Farþegafjöldinn jókst einnig verulega, eða um 22,5%, og fór yfir eina milljón á árinu. Heildarfarþegafjöldi hjá Primera Air reyndist þegar upp var staðið vera 1.017.657 farþegar.  Þá var sætanýting afar góð eða 85%.

Að hefja nýtt starfsár eftir metárangur á svo mörgum sviðum er mjög hvetjandi, sérstaklega í ljósi þess að á árinu hefjum við flug yfir Atlantshafið með nýjustu flugvélum Airbus, sem mun umbylta flugmarkaðinum og hafa okkar nýju flugleiðir fengið frábærar viðtökur,“ segir Andri Már Ingólfsson, forstjóri og eigandi Primera Air.

Hið virta rafræna tímarit um flugmál, Anna.aero, gerði nýlega greiningu byggt á vikulegum brottförum þar sem Primera Air lenti í 3. sæti á meðal evrópskra lággjalda flugfélaga í langflugi og í 6. sæti á heimsvísu.

Að vera á meðal þeirra bestu í þessum breytilega flugmarkaði er meiriháttar afrek. Það er líka staðfesting á því að við erum að stefna í rétta átt og það sem skiptir mestu máli er að við höldum áfram í viðleitni okkar til að bjóða upp lággjaldaflug bæði á flugferðum innan Evrópu og yfir Atlantshafið,“ segir Andri.

Eins og hefur verið tilkynnt, þá mun Primera Air opna nýjar starfsstöðvar í Birmingham (BHX), Stansted í London (STN) og Charles de Gaulle í París (CDG) til að hefja flug til New York, Boston og Toronto strax í apríl, ásamt nýjum áætlunarleiðum frá Bretlandi til Malaga, Palma de Mallorca, Alicante, Barcelona og Chania. Á næstu tveimur árum áætlar Primera Air að auka umfang sitt á núverandi stöðum og bæta við nýjum starfsstöðvum og áætlunarflugum yfir Atlantshafið þar sem flugfélagið hefur pantað tuttugu nýjar Boeing MAX9-ER þotur, segir í tilkynningu frá Primera Air í dag.