Sólskin og sunnanvindar

Erfitt er að stjórna svo vel fari í uppsveiflu. Hægast er að stjórna í niðursveiflu.

Launahækkanir síðustu ára hafa ekki keyrt upp verðbólgu. Samt er kostnaðarhlutfall atvinnuveganna mjög hátt.

Og og svo til ekkert svigrúm er til launahækkana.

Þá er þess að minnast að háir vextir eru það gjald sem við borgum fyrir óhóflegar launahækkanir. Þetta eru sannindi sem vilja gleymast.

Stærsta verkefnið framundan eru kjaraviðræður. Lyktir þeirra viðræðna munu að flestu leiti marka efnahagslega vegferð okkar næstu fimm árin eða svo.

Vinnumarkaðurinn er stóra áskorunin næstu þrjú misseri.

Og ófjármögnuð ríkisútgjaldaloforð stjórnmálamanna.

Staðan í efnahgsmálum er öfundsverð.

Henni er auðvelt að klúðra.

[email protected]