Sólrúnu öldu var bjargað út úr brennandi íbúð og berst fyrir lífi sínu: bænastund haldin í grindavík – „sameinumst og sendum henni og fjölskyldu hennar styrk“

Sólrún Alda Waldorff, sem er frá Grindavík, slasaðist alvarlega aðfaranótt miðvikudagsþegar henni var bjargað út úr brennandi kjalallaraíbúð í Mávahlíð í Reykjavík. Einn komst af sjálfsdáðum út úr brennandi húsinu en reykkafarar slökkviliðsins björguðu hinum tveimur út. Talið er að eldurinn hafi kviknað í potti á eldavélarhellu. Á heimasíðu Grindavíkurbæjar er greint frá því að vinkonur Sólrúnar sem búsettar eru í bænum standa fyrir bænastund í Grindavíkurkirkju í kvöld klukkan 20:30. Á heimasíðu Grindavíkurbæjar segir:

Sólrún Alda berst fyrir lífi sínu og hefur nú verið flutt erlendis á sjúkrahús til frekari aðhlynningar. 

Eftirfarandi skilaboð hafa vinkonur Sólrúnar látið berast á samfélagsmiðlinum Facebook þar sem þær hvetja til þess að sameinast verði í kirkjunni og bæði Sólrúnu og fjölskyldu sendur styrkur á erfiðum tíma.“

Þórunn Alda Gylfadóttir móðir Sólrúnar Öldu sagði ástandið mjög alvarlegt. Sólrún væri í lífshættu og tekin væri ein klukkustund í einu. Allar bænir myndu hjálpa. 

Eftirfarandi skilaboð hafa vinkonur Sólrúnar látið berast á samfélagsmiðlinum Facebook þar sem þær hvetja til þess að sameinast verði í kirkjunni og bæði Sólrúnu og fjölskyldu sendur styrkur á erfiðum tíma. 

Vinkonur Sólrúnar segja: „Elsku vinkona okkar hún Sólrún Alda er að berjast fyrir lífi sínu og langar okkur vinkonunum að halda bænastund í Grindavíkurkirkju. Sameinumst og sendum henni og fjölskyldu hennar styrk.“

Bænastundin fer fram klukkan 20:30 í kvöld.