Parið Sólrún Alda og Rahmon Anvarov slösuðust alvarlega í bruna í kjallaraíbúð í Mávahlíð aðfaranótt miðvikudags. Var Sólrún Alda flutt á sjúkrahús í Stokkhólmi þar sem hún berst fyrir lífi sínu. Rahmon liggur illa haldinn á sjúkrahúsi hér á landi.
Í samtali við Mannlíf segir Þórunn Alda Gylfadóttir, móðir Sólrúnar Öldu:
„Þau eru sterk og eru að standa sig eins og hetjur.“
Ljóst er að mikil og erfið endurhæfing er framundan hjá Sólrúnu Öldu og Rahmon og því mun fylgja mikill kostnaður.
Á Mannlíf segir einnig:
„Á erfiðum tímum sem þessum er mikilvægt að standa saman og hjálpast að. Takk fyrir hjálpina, við erum ykkur ævinlega þakklát.“