Sóli Hólm lét ummælin hverfa: „Ég deili þessari skoðun ekki með þeim“

Skemmtikrafturinn síkáti Sóli Hólm lét ummæli sín hverfa á Twitter eftir að honum var bent á samhengið. Sóli hafði í sakleysi sínu deilt með fylgjendum sínum að hann ætlaði að þrífa bílinn sinn að innan og hlusta á meðan á þáttinn Þungavigtin. Þann þátt stjórna þeir Rikki G, Kristján Óli Sigurðsson og Mikael Nikulásson. Ummæli í þáttum þeirra, Dr. Football og síðar The Mike Show, hafa verið mjög umdeild, Sóli hafði ekki áttað sig á því.

„Sniðugt. Getur þá ælt í sápu fötuna,“ sagði Henrý nokkur við Sóla sem kom af fjöllum:

„Ók, hverju er ég að missa af? Hefur eitthvað misjafnt gengið á í þessum þáttum? Ég er nú bara fíkill í fótboltaumræðu og vona að þessi þàttur einblíni á hana.“

Svo var vitnað í tíst Harðar Ágústssonar, kenndan við Macland.

Sóli ítrekaði að hann vissi ekkert um þetta:

„Ég var ekki búinn að sjá neitt af þessu. Ég er bara að leita í gamla banterinn um sport sem ég fékk þegar þeir voru saman hjá Doktornum. Ég deili þessari skoðun ekki með þeim svo það komi skýrt fram,“ sagði Sóli.

„Ég vona bara að nauðsynlegar breytingar verði gerðar á samfélaginu svo umræða um kynferðisbrotamál þurfi ekki að vera umfjöllunarefni í podcasti sem á að fjalla um fótbolta.“