Sölvi fær sér sopa af upprunanum

Sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason kveðst hafa heillast af svetti, jóga og íhugun fyrir nokkrum árum þegar hann áttaði sig á því að sífellt tækninotkun frá morgni til kvölds var farin að gera honum illt.

Hann var gestur Sigmundar Ernis í heilsu- og útivistarþættinum Lífsstíl á mánudagskvöld og hvatti þar kyrrsetufólk sem horfir ekki á annað en tölvuna sína og símann yfir allan daginn að hreinsa hugann með reglubundnum hætti. Svett sé ákveðin leið til að skilja óæskilegar hugsanir eftir inni í tjaldi sem er hitað upp með eldheitum steinum - og þar inni í myrkri og velgju kyrji menn á meðan þeir finni jafnvægi hugans, en svett á rætur sínar að rekja til indjána sem iðkuðu trú sína með þessum hætti.

Hann hefur stundað jóga og íhugun mun lengur - og í fyrstu hafi hann alltaf verið með móral, fundist hann vera að slóra og slá slöku við á meðan á íhuguninni stóð, en smám saman hafi hann komist upp á lagið með að tæma hugann í miðri hugleiðslunni, núllstilla sig og í reynd megi líkja þessari iðkun við að fá sér sopa af upprunanum.

Hann segist íhuga á hverjum degi og best líði honum ef hann nær að hugleiða 20 mínútur að morgni og annað eins undir kvöld - og ef honum takist það yfir langan tíma sofi hann betur, nærist betur og hafi mun meiri orku og einbeitingu til að takast á við veruleika hversdagsins.

Sjá má Lífsstíl í heild sinni á hringbraut.is og einnig klippur úr sama þætti.