Sóley björk hjólar í björn val

 

 

Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi Vinstri grænna í bæjarstjórn Akureyrar og oddviti VG þar í bæ, hefur samkvæmt áreiðanlegum heimildum Hringbrautar ákveðið að bjóða sig fram gegn Birni Val Gíslasyni, sitjandi varaformanni sem einnig er í framboði.

Mikil atburðarás hefur orðið síðustu daga og varðar slag um varaformannsstöðuna. Fyrir nokkrum dögum birtu 74 flokksmenn VG opinberan stuðning sinn á lista við að Daníel Arnarsson, 25 ára starfsmaður VG, byði sig fram til varaformanns. Daníel hætti við framboð á sjötta tímanum í dag. Nú fyrir stundu gaf svo Sóley Björk kost á sér gegn Birni Val. Hún var ein þeirra sem hafði stutt Daníel til varaformanns.

Sjálf sagði Sóley í samtali við Hringbraut í gær að það að skora á ungan mann til að bjóða sig fram til varaformanns væri ekki endilega til vitnis um að brýnt væri að skipta Birni Val út. Sjálfur hefur Björn Valur sagt að hann muni ekki sækjast eftir framboði á vegum flokksins ef hann fær ekki kosningu sem varaformaður. Ljóst er að flokkurinn er þverklofinn í afstöðu sinni.

Kosið verður í embætti á landsfundi VG á morgun. Ekki er búist við að Katrín Jakobsdóttir fái mótframboð.