Sumarsólstöður eru í dag en þá er sólargangur lengstur, en nóttn sem leið var jafnframt sú stysta á árinu. Víða um land er þessum tímamótum jafnan fagnað með margvíslegum samkomum og mannamótum.
Sumarsólstöður eiga sér stað þegar sólin nær þeim stað á sólbaugnum sem er lengst norður af miðbaug himins. Tekur því sólin nú að lækka á lofti.
Veðurstofan gerir ráð fyrir bjartviðri víða á landinu í dag, þó aðallega vestan til á landinu. Sums staðar verður skýjað og þokuloft norðan- og austantil, en skýjað með köflum og stöku síðdegisskúrir sunnan- og suðvestanlands. Heldur mun birta til í innsveitum norðanlands yfir hádaginn.
Veðurstofan spáir norðlægri eða breytilegri átt, 3-8 m/s.
Hiti verður á bilinu fimm til tólf stig norðan- og austanlands, en tíu til átján stig sunnan- og vestanlands.