Anna Valdís Jónsdóttir, Fjölskylduhjálp Suðurnesja, segir að hún og aðrir sem hafi ráðstafað matargjöfum til fátækra undanfarið hafi verið sakaðar um rasisma.
Í viðtali Hringbrautar við Önnu Valdísi sem m.a. var vitnað til í fréttaskýringaþættinum Kvikunni sl.mánudag var haft eftir Önnu Valdísi að 400 heimili hefðu þurft mataraðstoð og hefði hún aldrie séð annað eins í Reykjanesbæ.
Anna Valdís gagnrýnir að staðarfjölmiðlar á Suðurnesjum séu tregir til að fjalla um þessa staðreynd en hún segir einnig að Fjölskulduhjálp Suðurnesja hafi verið gagnrýnd fyrir að skilja útlendinga út undan þegar kemur að matargjöfum. Málið sé einfaldlega það að ekki hafi verið til nægur matur til að þjónusta alla sem þurftu aðstoð. Fjölskylduhjálpin sem sé ekki opinbert félag, hún hafi farið þá leið að hafna beiðnum frá útlendingum, þar á meðal flóttamönnum eða fólki sem sótt hafi um hæli. Hún vísi því fólki á kirkjuna sem þurfi ekki að forgangsraða en þetta hafi orðið til þess að hún sjálf og fleiri í kring hafi verið ásökuð um rasisma.
Talsmaður Fjölskylduhjálparinnar segir ljóst að margir kvíði jólunum en umfjöllun um fátækt drukkkni í fréttum af uppgandi og góðæri sem þó nái alls ekki til allra. Hún segist að telja megi þau dæmi á fingrum annarrar handar þar sem fólk hafi reynt að misnota sér aðstoðina. Sannarlega séu bótaþegar og fólk sem er illa komið fyrir fjárhagslega í 99% tilvika þiggjendur aðstoðarinnar en betur megi ef duga skal.