Ekkert lát er á sögum fórnarlamba nauðgara á lokuðu svæði Beauty tips hópsins á Facebook, en að minnsta kosti hundrað sögur höfðu verið birtar þar í morgun, þeim konum sem skrifa til mikils léttis og hvatningar.
Áslaug María Agnarsdóttir upphafskona átaksins segir við Fréttablaðið í dag að gífurlegt álag hafi fylgt stofnun og eftirfylgni Beauty tips en óneitanlega sé hún stolt af þessu framtaki sínu sem hafi fengið jafn mikil og sterk viðbrögð og raun ber vitni. Hún segir að í hvert sinn sem hún hafi farið inn á síðuna síðustu daga hafi þar verið komin ný sorgarsaga - saga sem þurfi að segja og upplýsa enda markmiðið með svæðinu að koma sökinni og skömminni yfir á þann aðila málsins sem á hvorutveggja skilið að fullu; gerandann.
Áslaug segir að í reynd sé þagnarmúrinn nú rofinn, konur finni að þær þurfi ekki lengur að fela sína eigin sorgarsögu innra með sér heldur geti þær nú deilt þeim með öðrum konum sem hafi þolað álíka ofbeldi. Úr hafi orðið bylting sem fært hafi völdin til kvennanna sjálfra.
Fjöldamargar ólíkar reynslusögur er að finna á Beauty tips svæðinu, jafnt undir nafni sem og undir dulnefni og eiga þær flestar það sammerkt að þar eru konur að létta skömminni af sér og skrifa sig frá þessum hræðilega kafla í lífi sínu þar sem þær voru svívirtar af ofbeldisfullum körlum.