Söguleg sátt um umhverfismál

Umhverfis- og skipulagsnefnd Alþingis er að klára náttúrverndarlög sem eiga að taka gildi á næstu dögum.

Núgildandi lög eru frá 1999 en lög sem fyrri stjórn setti 2013 voru felld niður, eða frestað.

Í frumvarpinu er almannaréttur skerptur skv. fréttum Rúv og verður verkaskipting stofnana skýrari en áður.

Rúv hafði eftir fyrrverandi umhverfisráðherra, Svandísi Svavardóttur þingmanni VG, að sumpart væri vikið frá lögunum 2013 en sumpart væri unnið í átt til enn betri niðurstöðu en þá. Umræða um náttúrvernd hefði þroskast mikið á skömmum tíma.

Höskuldur Þór Þórhallsson, Framsóknarflokki, kallar lendinguna sögulega sátt. Hann segir að meiri- og minnihluti Alþingis hafi mæst í málinu.