Söguleg málamiðlun um náttúruvernd

Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra og nefndarmaður í umhverfisnefnd Alþingis segir rétt að tala um sögulega málamiðlun í stað sögulegrar sáttar þegar hyllir undir nú náttúruverndarlög sem Alþingi tekur fyrir í dag.

\"Ég held að það sé mikilvægt að tala ekki um sátt um þessa niðurstöðu heldur sögulega málamiðlun,“ áréttaði hún í samtali við Morgunvaktina á Rás 2 í morgun, en þar var einnig rætt við Höskuld Þórhallsson, formann umhverfisnefndar sem sagði mikilvægt að rödd allra sem hafi haft hagsmuna að gæta skuli hafa fengið að heyrast þegar lögð voru drög að nýju lögunum.

Svandís segir í frétt RÚV vegna viðtalsins að þótt þessi lög verði samþykkt þýði það ekki að átökum um náttúruvernd sé ekki lokið: \"Sem betur fer er það þannig á Íslandi að náttúran kemur okkur öllum við og allir hafa skoðanir á henni og náttúruvernd. En þarna hefur tekist að leiða  sjónarmiðin þannig að borðinu og allir gátu talað skýrt og niðurstaðan væri þannig að allir gætu lifað við hana.“

Búist er við að Alþingi samþykki ný náttúruverndarlög á fundi sínum í dag og að lögin taki þá gildi á sunnudag. Talað hefur verið um sögulega sátt en málið á sér langan aðdraganda. 

Höskuldur Þórhallsson, formaður umhverfisnefndar, segir þetta góð lög sem eigi eftir að þjóna Íslendingum vel: \"Það sem ég held að skipti öllu máli er að hér er vandaður lagabálkur,“ segir Höskuldur en auðvitað finnist mönnum sem þeir hafi gefið eftir eða hafi viljað ganga lengra: \"Þarna voru kannski að takast á framkvæmdarsinnar og náttúruverndarsinnar og þarna eru stórar og miklar pælingar en þegar allt kemur til alls eru þetta góð lög sem eiga eftir að þjóna Íslendingum vel,“ sagði hann á Rás 2 í morgun.