Söfnun til að þrýsta á illuga

Gunnar Guðbjörnsson skólastjóri Söngskóla Sigurðar Demetz hefur hrundið af stað undirskriftasöfnun til að bjarga skólanum. Rúm vika er liðin síðan öllum tuttugu og átta kennurunum skólans var sagt upp. Sagði Gunnar þá að söngnám hérlendis yrði í hættu ef rekstarumhverfi söngskóla yrði ekki bætt og biðlar þar til stjórnvalda.

„Við höldum áfram baráttunni. Á sunnudag hittumst við hér í skólanum og stofnum okkur vinafélag fyrir skólann til að hjálpa honum í gegnum næstu mánuði eða þar til fyrir það fyrsta, skólanum verði tryggt líf til næsta vors. En baráttan er þar með ekki búin. Við þurfum að tryggja söngnáminu og í raun öllu tónlistarnámi í landinu framtíð,“ segir í bréfi Gunnars sem Hringbraut hefur undir höndum.

Fram koma í bréfinu áskoranir um að sem flestir skrifi undir, því helst þurfi að mæla fjölda undirskrifta í þúsundum til að afhenda Illuga Gunnarssyni mennta- og menningamálaráðherra sem fyrst.