Sigríður Guðmarsdóttir prestur gerir athugasemd við fjáröflun sem nú stendur yfir.
Á vef Framsóknarflokksins, framsokn.is, segir frá söfnun fyrir langveik börn. Séra Sigríður vitnar til framtaksins á eigin fésbók og skrifar:
„Leiðtogadýrkun og góðgerðarstarfsemi allt í einum pakka er athyglisverður vinkill á andlegt landslag Íslendinga 21.aldar.“
Með því vísar presturinn til þess að hluti af fjársöfnuninni felst í að selja mynd sem máluð hefur verið af foringja framsóknarmanna, formanninum Sigmundi Davíð.
Hún segist einnig heilluð af íkonamyndum af Stalín og Lenín frá síðustu öld og þær myndir hafi henni dottið í hug er hún sá myndina að ofan.
Á vef framsóknar segir að söfnun standi yfir fyrir langveikum börnum og myndin af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra verði boðin upp og féð renni til söfnunar Barnaspítala Hringsins.
Kemur fram að listakonan Ýrr Baldursdóttir tattoo- og airbrush meistari hafi málað myndina af Sigmundi Davíð sem hangi nú á skrifstofu Framsóknarflokksins og muni gera það „næstu vikur, eða þar til það verður selt í þágu góðs málefnis.“