Söfnunarátakið Bjartara líf fyrir flóttafólk er byrjað að nýju í 40 IKEA-verslunum víða um lönd, þar á meðal á Íslandi, en fyrir hvert ljós eða ljósaperu sem seld er í IKEA verslunum og netverslunum frá 29. nóvember til 19. desember, rennur ein evra til flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Í tilkynningu frá IKEA segir að söfnunarféð verði notað til að koma upp endurnýjanlegri orku og lýsingu í flóttamannabúðum – og gera þær þannig öruggari og fjölskylduvænni.
Féð verður nýtt til uppsetningar á götulýsingu og lömpum sem ganga fyrir sólarorku, auk orkugjafa sem ganga fyrir sólarorku, í flóttamannabúðum í Asíu, Afríku og Miðausturlöndum. Þar að auki verður hluti fjárins nýttur til að auðvelda aðgengi að grunnmenntun.
Í dag er áætlað að fjöldi flóttamanna í heiminum sé 19,5 milljón og þar af helmingurinn börn. Þótt stríð og ofsóknir séu enn helstu ástæður þess að fólk neyðist til að flýja heimkynni sín, þá hefur Flóttamannastofunin vaxandi áhyggjur af loftslagsbreytingum og tengdum áhrifavöldum, þ.m.t. náttúruhamförum eins og þurrkum og flóðum, og skorti á náttúruauðlindum.
IKEA stóð fyrst fyrir söfnunarátakinu Bjartara líf fyrir flóttafólk árið 2014 og nú er komið að síðasta kafla þess. Hingað til hefur gríðarlega mikilvægur árangur náðst:
* Rúmlega 284.000 flóttamenn í Eþíópíu og Jórdaníu búa nú við meira öryggi að næturlagi, vegna uppsetningar á fleiri en 56.000 ljósum og 720 ljósastaurum sem ganga fyrir sólarorku.
* Fleiri en 37.000 börn flóttamanna hafa verið skráð í grunnskólanám í Bangladesh, Chad og Eþíópíu, sem gerir þeim kleift að halda áfram námi þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Þar að auki hafa fleiri en 740 kennarar fengið þjálfun í þessum löndum.
* 22 lífgasstöðvar hafa verið reistar í Bangladesh, sem nýta um 15% úrgangsins í búðunum til framleiðslu á orku sem nýtist við matreiðslu.