Soffía dröfn opinberar hryllinginn: „líf mitt snýst að þóknast honum„ - „þú ert geðveik„ - „þú endar á því að drepa þig„

Soffía Dröfn Snæbjörnsdóttir opnaði sig á dögunum á hetjulegan og einlægan hátt um afleiðingar heimilisofbeldis. Í dag er tæpt ár síðan Soffía losnaði úr sambandinu sem einkenndist af líkamlegu, andlegu og kynferðislegu ofbeldi.

Í samtali við Hringbraut sagðist Soffía hafa fundið mikinn styrk með því að stíga fram og fann hún fyrir miklu þakklæti. Nú hefur Soffía opinberað að fullu þann hrylling sem hún bjó við og birti Kvennablaðið frásögn hennar.

Soffía segist hafa upplifað sig sem „fasta í fangelsi“ en fyrrum sambýlismaður hennar smánaði hana daglega. Hún taldi sig ástfangna af honum og varði sambandi í um eitt og hálft ár. Á þeim tíma varð Soffía Helgekin af sambandinu og þörfum sambýlismannsins og þrám. Allt snerist um að halda honum góðum svo hann trylltist ekki og beitti hana ofbeldi.

„Viðhorf mitt breyttist eftir að ég byrjaði að opna mig um ofbeldissambandið. Það er að hjálpa mér mikið,“ segir Soffía Dröfn. Hún viðurkennir að í fyrstu mundi hún bara eftir góðu stundunum en með mikilli hjálp frá Stígamótum, sálfræðingum og áfallateymi Landspítalans hafi hún loks náð tökum á lífi sínu á ný.

Eftir að Soffía og fyrrum sambýlismaður hennar hófu samband leið ekki á löngu þar til ofbeldið hófst. Segir hún fólkið í kringum sig hafa reynt að vara hana við en hún hafi ekki viljað heyra það. Vinkonur Soffíu horfðu á hana hverfa hægt og rólega og á einum tímapunkti var hún orðin 44 kíló.

\"\"

Þegar Soffíu leið sem verst ákvað hún að skrifa niður hugrenningar sínar:

„Þú lítur út eins og grýla, ég horfði á konur eins og þig þegar ég var lítill og fannst þær vera geðveikar. Þú ert búin að lenda í svo miklu að þú ert geðveik. – Ég segist vera andlega búin. Tilfinningarnar eru svo miklar, allt er svo fokking erfitt, ég næ mér ekki niður. Hann byrjaði á Tinder sem algerlega fokkaði mér upp. Höfnun og niðurlæging. Ég hef enga trú á mér lengur. Ég er kvíðin og fokking ónýt. Hann setur mig í milljónasta sæti, vill ekki standa mér við hlið í einu eða neinu. Mér finnst eins og hann hafi núll áhuga á mér. Ég skrifaði ástarbréf og hann las það ekki. Fokk, þetta er of mikið,“ stendur í skrifum Soffíu.

Hún heldur áfram og segir: „Hann kallaði mig gagnslausa druslu í dag og sagðist hata mig. Hann sagði mér að kaupa Pepsi Max og kjöt. Hann snappaði því hann fann ekki ostaskerann og sagði mér að kaupa nýjan. Ég reyndi mitt besta til hálf níu en fann hann því miður ekki. Ég vissi hann myndi spila tölvuleikinn á meðan ég var að skutlast í þessu fyrir hann. Sagði við mig: „What the fuck“ að ég ætlaði með son minn í sund, því ég átti að elda fyrir hann og ganga frá eftir kvöldmatinn sem ég eldaði. Ég er honum einskis virði Honum er skítsama um mig. Er kaldur, reiðist þegar ég græt, segir mér að þegja og hann nenni ekki að hlusta á þetta væl,“ skrifaði Soffía.

„Hann bilaðist í gærmorgun því hann svaf yfir sig, kenndi mér um að hafa slökkt á vekjaraklukkunni og sagðist vera of góðu vanur með fyrrverandi kærustunni sinni. Ég geri bókstaflega allt, já allt fyrir hann, en það er aldrei nóg. Ég bið hann um eina klukkustund á dag og þá er það „kannski“ en auðvitað gerir hann það ekki. Af hverju er ég að gera líf mitt að helvíti? Ég er tóm, hrædd, einmana, meðvirk. Hann kennir mér um allt. Ég þjóna honum, borga allt en hann nær að snúa mér þannig að ég fari að trúa því að ég sé ekki að gera nóg.“

Soffía segir hann enn fremur margoft hafa kallað sig trega og heimska, geðbilaða og fórnarlamb. Hann hafi aldrei hrósað henni né kysst. Segir hann hafa verið í litlu sambandi við fjölskyldu sína og erfiður í samskiptum við son hennar.

„Stundum ef ég er að vinna „leyfir“ hann syni mínum að vera hjá sér. Hann gefur honum ekki að borða, segir honum að redda sér og ef hann biður um aðstoð við heimalærdóminn neitar hann og segi honum að gera það sjálfur,“ segir Soffía.

Braut í henni við- og rifbein en bannaði henni að fara til læknis

Soffía segir hann hafa notað einskonar höfnunartækni á hana með því að afneita henni og loka á samskipti ef hún hlýddi ekki skipunum hans.

„Ég er í ástarsorg daglega. Ég skil ekki af hverju hann er svona. Þori ekki að ræða við hann. Loka mig inni og held í vonina að einn daginn breytist hann…en ég hef enga trú á því. Hann gerir ekki handtak. Hann spilar bara tölvuleiki, ég elda fyrir hann og hann sefur. Hann gleður mig ekki. Hann færir mér ekkert. Líf mitt snýst að þóknast honum, hræðslan við að missa hann er svo mikil sem ég skil gersamlega ekki því hann hefur upp á að bjóða, nema vera þarna áhugalaus og ósanngjarn. Sama hversu mikið ég vinn er hann ekki til staðar.“

\"\"

Soffía velti mörgum sinnum fyrir sér hvers vegna hún fór ekki frá honum og taldi sér trú um að enginn gæti hjálpað henni nema hún sjálf.

Þá lýsir Soffía frá einu af þeim fjölmörgu skiptum sem hann réðst á hana og segir: „Dag einn kom ég heim úr vinnunni. Hann biður mig að stoppa í Hagkaup að kaupa Pepsi Max, sem ég geri. Pepsi Maxið var ekki nógu kalt þannig hann kýlir mig í magann. Ég fer að hágráta. Hann segir mér að halda kjafti. Stendur upp og brýtur í mér rifbein. Tekur svona körfu sem teppin eru í, úr járni, og kastar í mig þannig viðbeinið hinum megin brotnar. Þannig ég var rif- og viðbeinsbrotin. Ég ákvað að fara til læknis, keyri niður á slysó, hann eltir mig þannig ég gat ekki farið. Gat ekki fengið áverkavottorð. Í öll þessi skipti sem hann lamdi mig.“

Soffía segir sambýlismann sinn hafa náð að heilaþvo hana og segir hún það sitja virkilega í sig þegar hann sagði við hana:

„Þú byrjar með einhverjum manni, hann sér hvað þú ert geðveik og fer frá þér. Svo byrjarðu með öðrum og það sama gerist. Svo fer sonur þinn frá þér líka og þú endar á því að drepa þig.“

Hún segir hann hafa haft sig algjörlega í vasanum og að hún hafi hræðst lífið án hans.

„Hann er með völd. Ég á að horfa á hann þegar hann talar, annars verður hann brjálaður, neikvæður, skipar mér að gera hluti annars fer hann í tölvuna eða lætur mig eltast við sig. Ég er óörugg, leið, sár, ég er vonsvikin. Hann notar mig, felur hluti fyrir mér, svarar aldrei símanum sínum, gerir ekkert fyrir mig. Ég þóknast öllu sem hann segir, ég er svo hrædd við höfnun. Ég er svo undirgefin honum. Vill ekki vera með mig í kringum vini sína, talar niður til mín, vill ekki vera í kringum mig, hrósar mér aldrei, í tölvuleik alltaf, alla daga, segir mig vera tregustu manneskju sem hann veit um, hann pirrast alltaf við mig,“ skrifar Soffía.

Fjölskyldan skarst í leikinn

Fjölskylda Soffíu skarst í leikinn og hjálpaði henni að losna undan honum. Segir hún það þó hafa tekið svolítinn tíma og að hún hafi haldið áfram að hitta hann eftir að þau höfðu afskipti af þeim.

„Ég elska þau út af lífinu í dag. Segi þeim það á hverjum degi hvað ég er þakklát fyrir þau,“ segir Soffía.

Í dag er Soffía komin á gott ról, komin með góða vinnu, hreint heimili og er mjög hraust. Hún nýtur þess að klæða sig upp án afskipta en fyrrum sambýlismaður hennar bannaði henni meðal annars að vera í hælaskóm.

Segir Soffía son sinn á góðu róli í dag þrátt fyrir að hafa þurft að hlusta á manninn rakka móður sína niður kvöld eftir kvöld. Soffía blómstrar í dag og er að eigin sögn stolt hetja.