Snúin staða rædd með góðum gestum

Þegar er ljóst hvaða stjórnmálafólk mætir í laugardagsþátt Þjóðbrautar, í útvarpi Hringbrautar, í fyrramálið. Þátturinn hefst klukkan tíu og stendur til hádegis, klukkan tólf.

Til að byrja með verður viðtal við Erlu Bolladóttur og síðar í þættinum koma þrír stjórnmálamenn í þáttinn. 

Það eru þau Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir, Lilja Alfreðsdóttir og Óttarr Proppé. Þau munu ræða um þá fátíðu stöðu sem nú er uppi í stjórnmálunum.

Ekki er enn ljóst hvaða gestir koma fleiri.

Stjórnandi þáttarins er Sigurjón M. Egilsson.