Snorri ræðir hnignun akureyrarbæjar

Farið er að fjara undan Akureyri, segir Snorri í Betel í tæpitungulausum pistli þar sem hann segir forráðamönnum bæjarins til syndanna og gerir upp gömul mál.

Í skrifum Snorra vegur þungt að Akureyrarbær hefur hætt samningi við að leikskóla sem rekinn var á vegum Hvítasunnusafnaðrins, þess safnaðar sem Snorri tilheyrir. Kemur það ofan á það áfall sem Snorri segist hafa orðið fyrir þegar bærinn sagði honum upp störfum sem grunnskólakennara vegna skrifa hans á eigin bloggi. Bærinn taldi skrifin meiðandi fyrir samkyhneigða og vildi gæta hagsmuna nemenda Snorra með því að láta hann fara. Bæjarfulltrúar töldu um hatursskrif að ræða. En enn bloggar Snorri.

Pistill Snorra ber yfirskrifitina Guð minn, Guð minn! Hann endar skrifin á því að segja: \"Heill sé forseta vorum og fósturjörð. Húrra, húrra, húrra. Afnemum Guðlaus lög og sjónarmið.\"

Fyrst víkur Snorri gagnrýni sinni að Prestafélaginu.

\"Við heyrum einnig um aflandsfélögin sem fylla erlend bankahólf af fjámunum landanna en geta ekki greitt sanngjörn laun, verkamanninum sem býr til verðmætin. Við glímum við verktaka sem koma úr gömlu kommúnistaríkjunum þar sem kristna siðferðinu var útrýmt og löndin voru ,,aflúsuð\" af kristninni á faglegan hátt. Í þeim löndum voru hvorki jólafrí eða páskafrí né tekið tillit til kristinna helgidaga. Sjáum við ekki félaga Júdasar í landinu okkar? Samt eru menn í dag að leggja fram frumvarp sem afnemur helgi frídaganna og vilja eingöngu taka mið af vinnulöggjöfinni. Þar skal miða við hag vinnuveitenda eins og þeirra sem koma hingað sem verktakar með annarleg siðferðileg viðhorf til launþega og ábyrgðar í þátttöku til samfélagsins. Og Prestafélagið sagði:,,Amen\"!\"

Þá opnar Snorri byssuhlaupið og beinir því að bænum sem hann flutti til frá Vestmannaeyjum:

\"Það var sárgrætileg uppákoma hér um daginn þegar fulltrúar Skólaskrifstofu Akureyrar ásamt formanni skólanefndar komu á fund í Hvítasunnukirkjunni til að tilkynna um uppsögn á samstarfssamningi við Leikskólann Hlíðaból. Ástæðan var sú að ,,börn vantaði í bæinn\"! Það var gott að heyra að börn væru mikilvæg inní samfélag bæjarins. En bæjarstjórn Akureyrar hefur leyft sér að fara herför gegn mér í nafni mannréttinda og lífsmáta sem ekki skaffar börn til samfélagsins. Ég, sem legg til hjón eignist mörg börn og mæli gegn fóstureyðingum var sagðu af þessum yfirvöldum hafa ,,mannfjandsamleg sjónarmið\"!\"

Með lífsmáta sem ekki skaffar börn til samfélagsins á Snorri við samkynhneigð sem hann kallar reydnar oftast kynvillu.

\"Fjórum árum síðar, eftir för til ráðuneyta og dómsstóla er niðurstaðan þessi að börn vantar í bæinn. Þá er framtíð bæjarins í uppnámi. Farið er að fjara undan og á næsta ári sígur húsnæðsverð, þjónusta minnkar, vinnandi hendur fara annað og hver vill vera í sveit þar sem stærsti vinnuveitandinn er elliheimilið?

Er ekki hér eitthvað að læra af og snúa frá þegar ávöxturinn er færri börn, meiri ófriður, minni sátt og aukið Guðleysi? Heyrum við þessi viðvörunarorð frá Guði almáttugum?

Biblían segir: ,,Nemið staðar við vegina og litist um og spyrjið um gömlu göturnar, hver sé hamingjuleiðin og farið hana svo að ÞÉR FINNIÐ SÁLUM YÐAR HVÍLD\". Jer.6: 16\"

Lýkur Snorri bloggpistli sínum þannig sem fyrr segir: \"Heill sé forseta vorum og fósturjörð. Húrra, húrra, húrra. Afnemum Guðlaus lög og sjónarmið.\"