Snjórinn ekki á undanhaldi

Enda þótt veturinn hafi aðeins verið að lina tök sín á landinu eftir vorjafndægur með heldur lygnari tíð en verið hefur mestan hluta veturs er snjókoma ennþá í kortunum. Dagurinn verður harla köflóttur í veðri, einkum þegar líða tekur nær kvöldi en þá má búasat við vaxandi suðaustanátt, slyddu, rigningu og loks snjókomu á vestanverðu landinu. Hiti verður um eða yfir frostmarki. Talsverður vindur fylgir þessu veðurlagi, en þó ekki stormur.


Helstu þjóðleiðir taka mið af þessu veðurlagi, mjög víða er hálka eða skæni af fönn á vegum landsins en víðast hvar þó vel fært, ef farið er að með gát. Það er með öðrum orðum hálka á Hellisheiði og Mosfellsheiði og hálkublettir á Sandskeiði, í Þrengslum og á Suðurstrandavegi en vegir á Suðurlandi eru þó að mestu leyti auðir. Á Vesturlandi er víðast greiðfært á láglendi en hálka, snjóþekja eða hálkublettir á fjallvegum. Hálka og þoka er á Holtavörðuheiði. Á Vestfjörðum eru víðast hvar hálkublettir en sumstaðar snjóþekja eða nokkur hálka. Þungfært er norður í Árneshrepp. Á Norðurlandi er nú víða nokkur hálka eða snjóþekja og einnig éljagangur eða skafrenningur, einkum eftir því sem austar dregur. Þæfingsfærð er á Möðrudalsöræfum en unnið að mokstri. Snjóþekja eða hálka er allvíða á Austurlandi og sumstaðar skafrenningur. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Fjarðarheiði en verið er að moka. Aftur á móti er autt að mestu niðri á fjörðum og með suðausturströndinni.