Snjóflóðahætta metin mjög mikil

Enn kynngir niður snjó víða á landinu þótt kominn sé apríl og afleiðingarnar eru gamalkunnar; snjóflóð féll úr Miðstrandargili á utanverðum Tröllaskaga í gærkvöld og er Siglufjarðarvegur enn lokaður fyrir vikið. Vegagerðin varar við snjóflóðahættu víða úr giljum á þessu svæði, svo sem út með vestanverðum Eyjafirði og Skagafjarðarmegin á skaganum mikla. Veðurstofan metur raunar hættuna á utanverðum Tröllaskaga mjög mikla, en þar hefur safnast töluvert af snjó í nokkrum lögum. Nú síðasta sólarhring, segir í hættumati Veðurstofunnar, snjóaði mikið í hægum vindi og er sá snjór mjög laus í sér. Spordýpt er víða 60 cm sem gefur til kynna að mjög mikill snjór geti farið að skafa á morgunn.


Enn gætir ófærðar á þjóðleiðum landsins, einkum eystra: Ófært og stórhríð er á Fjarðarheiði. Ófært er um Vatnsskarð eystra en mokstur er hafinn þar.  Þæfingsfærð og skafrenningur er á Oddsskarði, eins er þæfingsfærð á Hróarstunguvegi og á Hlíðarvegi. Hálka eða hálkublettir eru svo nánast með allri suðausturströndinni og vestur með landinu þar sem skafrenning er að finna á flestum heiðum.  


Kalt verður næstu daga og fer frostið niður í 8 gráður en svo gengur í austan strekking sunnantil á landinu á föstudag með dálítilli snjókomu eða slyddu og hægt hlýnandi veðri.